Gönguleiðir

Fallegar gönguleiðir um stórkostlegt landslag er víða hægt að finna við Bjarnastaði og
nágrenni. Frá Þrívörðunum ofan við sumarhúsasvæðið er frábær jökla- og fjallasýn. Þaðan sést hvernig Hallmundarhraunið breiðir úr sér og falleg litasamsetning Tungunnar. Eins er hægt að ganga inn með Hraunánni og sjá hvernig hraunið hefur numið staðar við ána, sem er mjög sérstakt og fallegt. Svo er hægt að ganga Lambeyrarhringinn sem er venjulega farinn á hestum. Þá er farið yfir Hraunána og inn í skóginn eftir hestaslóðanum. Þar er hægt að sjá minni útgáfu af Hraunfossum sem eru skammt undan.



|